Velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum systkinin Margrét Mist og Atli Snær. Við eigum líka von á litlum bróðir/systir 4. júlí 2011 og bíðum mjög spennt eftir því!
Margrét Mist fæddist þann 12.nóvember 2005.Hún var 2.750 gr (11 merkur) og 48 cm. Margrét er algjör skellibjalla sem elskar að leika, dansa og syngja.
Atli Snær fæddist á föstudaginn langa, þann 10. apríl. Hann var 3.480 gr (tæpar 14 merkur) og 51 cm. Atli Snær er voða rólegur og vær og eitt glaðasta barn sem við þekkjum - alltaf brosandi og algjör gimsteinn!